1. |
Intró
01:12
|
|||
2. |
Ástin mín eina
02:58
|
|||
Þessi sinuguli sorgardagur
Stuðlar að heimsins vímu
Svartur sandur, bál og brandur
Brennur í blíðu og stríðu
En ástin mín eina, tak mína hönd
Er eldurinn verður oss senn að grandi
En ástin mín eina, ég sver, ég þig trega
Og þar til, við dönsum á svörtum sandi
Og blóð okkar æðir
Úr öskunni í eldinn
Er bálið það brennur upp
Blóð, hold og feldinn
Okkur var ætlað eitt
Engu skal héðan breytt
Uss, ekki segja neitt
Sorgin er okkur veitt
Þessi sinuguli sorgardagur
Stuðlar að heimsins vímu
Svartur sandur, bál og brandur
Brennur í blíðu og stríðu
En ástin mín eina, tak mína hönd
Er eldurinn verður oss senn að grandi
En ástin mín eina, ég sver, ég þig trega
Og saman við munum að eilífu vera
Og blóð þitt skal streyma
Frá sandi ofan í jörðu
Er funi hann fjötrar oss
Fikrar nær fjörðu
Okkur var ætlað eitt
Engu skal héðan breytt
Táraflóð, tem ég mig
Tilgangslaust man ég þig
Ástin mín eina, milli fingra þú flæðir
Fokin úr höndum mér, blóð þitt það æðir
Krýp niður að sandi, læt blæinn þig bera
En saman við munum að eilífu vera
|
||||
3. |
Dystópíski draumurinn
03:05
|
|||
Maðurinn á skjánum
Aldrei fékk að finna
Heitan geisla sólar
Kyssa sínar kinnar
Fólkið elskaði hann
Þau vildu hann vera
Stolt heillar þjóðar
Erfitt er að bera
Heil sé dystópíska martröðin
Eða var hún draumur
Ég er maðurinn á skjánum
Er gleymdur, dauður
Og eins og hann spáði
Hvarf hann ljósinu frá
Um leið og ný stjarna
Tók yfir fólksins skjá
Þú varst stærsta stjarnan
Þú brannst hratt og skært
Að lokum tapaðir þú öllu
Sem þér var kært
Heil sé dystópíska martröðin
Er eitt sinn var draumur
Tók yfir öll þín vit
Og eftir ertu auður
Heil sé dystópíska martröðin
Er eitt sinn var draumur
Ég er maðurinn á skjánum
Er gleymdur dauður
Er gleymdur dauður
Er eftir auður
Er eitt sinn var draumur
|
||||
4. |
Ómerkilegir menn
03:14
|
|||
Hann sem alltaf átti vini
En fannst þeir aldrei, aldrei vera nóg
Hljómsveit hertekin draumi
Hann trúir að frægð hans færi ró
Kamel sígó, sjalla sonur
Sára ómerkilegur hann er
Mikilmáttarmennsku-æði
Maðurinn hann er svo fokking þver
Finnst hann hafa fundið upp rokk
Fer ekki lítið fyrir honum
Þegar hann stígur á stokk
Já stígur á stokk
Já stígur á stokk
Já stígur á stokk
Já stígur á stokk
Kamel sígó, sjalla sonur
Sjaldnast edrú, oftar dauður
Heilug sælan á hann kallar
Hana hunsar, heilinn auður
Finnst hann hafa fundið upp rokk
Fer ekki lítið fyrir honum
Þegar hann stígur á stokk
Hann sem alltaf átti vini
En fannst þeir aldrei, aldrei vera nóg
Hljómsveit hertekin draumi
Hann trúir að frægð hans færi ró
Kamel sígó, sjalla sonur
Sára ómerkilegur hann er
Mikilmáttarmennsku-æði
Maðurinn hann er svo fokking þver
Svo fokking þver
|
||||
5. |
Dauðaþögn
04:38
|
|||
Snemma að morgni, grafið, gleymt
Grýtir salti í sárið
Leyndarmálin, þung og þreytt
Þögnin þaggar fárið
Og ef áfram heldur það sem horfir
Hugstola
Bið ég þig
Haltu mér eftir
Og eflaust lét ég gamminn geysa
Glefsar strax á móti
Þreytt er þessi helvítis hneisa
Hjalar að mér þótt ég hóti
Niðri heldur mér hálstaki
Hjartsláttur minn eflaust eykst
Hleypir öllu í bál og brand
Ég blekkti þig er þú mig sveikst
Snemma að morgni, grafið, gleymt
Grýtir salti í sárið
Leyndarmálin, þung og þreytt
Þögnin þaggar fárið
Yfir okkur, golan gnæfir
Gefur frá sér dæs og drunur
Heldur í mig, harðri hendi
Heitir frá sér dræmar stunur
Hugstola bið ég þig
Haltu mér eftir
Áþekkir hnekkir
Og þögnin mig blekkir
Hugstola bið ég þig
Haltu mér eftir
Áþekkir hnekkir
Og dauðaþögnin
Hún mig blekkir
Þögnin mig blekkir
Þögnin mig blekkir
Og dauðaþögnin mig blekkir
Og dauðaþögnin mig blekkir
|
Streaming and Download help
If you like Ókindarhjarta, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp